11.11.06

Blogger

Í dag býður Blogger upp á það á silfurfati sem ég þráði í gær: Betri stjórn á útliti bloggsins. Þá er ekkert að vanbúnaði að blogga eins og mörður.

9.11.06

Er þetta comeback?

Við skulum sjá hvað gerist. Ég efast um að ég hafi samvisku í að skrifa letilegt blogg þar sem ég vanræki lestur á annarra manna bloggum. En kannski læt ég þetta standa sem smá plögg síðu fyrir það sem ég er að gera hverju sinni.

Hluti af ástæðunni fyrir því að ég hef ekki sett upp blogg fyrr er það að ég hef viljað hanna það og hosta sjálfur á andri.olifjalar.com. Ég hef nokkrum sinnum verið langt kominn að setja upp síðu en hikstað á e-m tækniatriðum, svo sem að mistakast að importa gamla blogginu mínu, eða gleyma lykilorðinu að servernum.